Tíðindi

Hið magnaða ris Airbnb

  21/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Fyrir þremur árum síðan var ekki til neitt sem hét Airbnb. Í dag er fyrirtækið orðið svo vinsælt og umsvifamikið að það er á góðri leið með að verða stærsti leigusali heims.

Eflaust hafa Íslendingar tekið eftir auglýsingum Airbnb, Airbednbreakfast, á fésbókinni en þar hefur fyrirtækið auglýst grimmt í marga mánuði. Þar er lofað rúmum þrettán þúsund krónum á dag fyrir að leigja út íbúðina þína til ferðamanna.

Og þar liggur allur galdurinn. Airbnb tengir saman þá sem vantar svefnpláss og þá sem eiga svefnpláss sem ekki er notað. Allir aðilar hagnast. Íbúðareigandi fær ágætan pening, ferðalangar fá meira úrval og oft á lægra verði en hefðbundin hótel og Aribnb tekur umboðslaun af hverri leigu.

Er þetta enn eitt vopn ferðamanna gegn síhækkandi kostnaði á hótelum og gistihúsum en reyndar eru margir leigjendur helst til gráðugir þannig að munurinn er oft á tíðum lítill og á stundum eru íbúðir í boði mun dýrari en góð hótelherbergi.

Engu að síður þess virði að fletta íbúðaskrá Airbnb. Þar eru í boði bæði heilar íbúðir og hús en einnig laus herbergi inni á fólki ef það heillar einhverja. Inn á milli má finna skútur, snekkjur, fjallakofa og ýmislegt annað sem fólk í heiminum brúkar sem þak yfir haus.

Vefur Airbnb hér.