Tíðindi

Herör gegn þreyttum flugumferðarstjórum

  17/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Bandarísk flugmálayfirvöld hafa nú skorið upp herör gegn þreyttum flugumferðarstjórum en upp á síðkastið hafa fjölmörg atvik komið upp á yfirborðið þar sem flugumferðarstjórar hafa sofnað við skyldustörf og skapað þannig stórhættu fyrir þúsundir flugfarþega.

Er vandamálið ekki nýtt af nálinni enda starfsdagur flugumferðarstjóra víðast hvar töluvert langur en það sem er sérstakt nú er hversu mörg slík mál hafa ratað í fjölmiðla.

Svo alvarlegt er vandamálið að æðsti yfirmaður flugumsjónarmála hjá bandaríska flugmálastofnunni, FAA, hætti störfum í síðustu viku vegna eilífra áhyggja af slysi vegna þessa.

FAA ætlar hyggst strax breyta vinnutímum flugumferðarstjóra vegna þessa og bæta við hvíldartíma starfsmanna sinna milli vakta.