Öll vitleysan er ekki eins. Útvarpsstöðin Bylgjan auglýsir nú fría ferð fyrir tvo til Halifax með Icelandair fyrir vinningshafa úr potti sem allir geta tekið þátt með því að skrá sig á vef stöðvarinnar.
Það er alfarið gott og blessað að mati ritstjórnar Fararheill.is en lýsingarnar á borginni eru út í Hróa hött og alla vini hans.
- „Vilt þú eiga möguleika á því að upplifa borgina sem að snertir sálina?“
Þó borgin sé vissulega stór á íslenskan mælikvarða er hún töluvert krummaskuð á kanadískan mælikvarða. Engin dæmi eru um að borgin hafi snert sál eins né neins. Þarf sá hinn sami að vera töluvert einfaldur einstaklingur ef Halifax gefur sálarsnert.
- „Icelandair, Destination Halifax og Bylgjan vilja gefa þér möguleika á að njóta lífsins í þessari borg sem iðar af menningu og mannlífi“
Icelandair tímdi ekki einu sinni að blæða sjálft ferð fyrir tvo heldur fær til þess ferðamálayfirvöld í Nova Scotia. Verra er að fullyrða að Halifax „iði af menningu og mannlífi“ því það gerir hún aldrei. Sérstaklega ekki seint í október þegar umrædd ferð verður fyrst í boði. Þá er drullukalt á austurströnd Kanada og eina iðið á fólki er þegar það hristir sig til hita.
Sjá allt um hvernig Halifax raunverulega er hér.






