Ö llum finnst okkur tíminn líða of hratt og fyrr en varir er enn einu sinni komið að einni merkustu hátíð heims: Októberfest í Bæjaralandi. Henni hleypt af stokkunum í september og í raun ekki seinna vænna að fara að negla niður hótel ef búa á nálægt hátíðarsvæðinu.

Það er sannarlega upplifun að njóta stunda á Októberfest í Munchen en ágætt að hafa nokkra hluti í huga áður.
Við mælum hundrað prósent eindregið með ferð á staðinn því vandfundnar eru betri hátíðir ef fólk er fyrir grín og gleði, mat og drykk og sérstaklega það síðastnefnda.
Eins og við höfum áður fjallað um er ráð að skipuleggja ferð á Októberfest með eins löngum fyrirvara og kostur er því fleiri eru um hituna en pláss er fyrir sem veldur því að verðlag á gistingu í borginni hækkar duglega meðan á Októberfest stendur. Nema fólk taki með sér bílstjóra er þörf á að vera sem næst hátíðarsvæðinu og sæmileg gisting þar í kring á hóteli sem flokkast sem ágætt eða gott getur verið kringum 40 þúsund krónur á nótt að lágmarki.
Okkur fannst við hæfi að taka saman nokkra punkta þess utan svo áhugasamir séu eins vel undirbúnir og hægt er því það er leikur einn að eyðileggja slíka ferð. Til dæmis þegar þú kemst að á staðnum að uppselt er í allar bjórhallirnar.
♥ Heimamenn gera mikið mál úr klæðnaði hér og tracht klæðnaður karlmanna og dirndl-kjóll kvenmanna nánast lágmark. Stöku bjórhallir meina fólki aðgang sé það ekki klætt á þennan bavaríska máta. En það er peningaeyðsla að fata sig upp fyrir fleiri tugi þúsunda fyrir viðburð sem fólk sækir kannski aðeins einu sinni á lífsleiðinni. Ráðið er að leigja búning en nokkrar slíkar fataleigur eru opnar nálægt hátíðarsvæðinu. Töltu inn og láttu fata þig upp en fyrir karlana kostar leiga yfir fjóra til fimm daga um 20 þúsund krónur og um fimmtán þúsund fyrir kvenfólkið. Svo er óvitlaust að læra nokkra þýska frasa í vélinni á leiðinni yfir og slá um sig.
♥ Þó ýmislegt sé við að hafa yfir hátíðina er dúllerí í bjórhöllum og tjöldum aðalatriði hverrar Októberhátíðar. En fyrir alla muni skal fólk reyna að panta pláss fyrirfram þá daga sem dvalið er. Það er nefninlega ekki svo að hægt sé að labba inn og út um hallirnar á hátíðarsvæðinu og panta stóran bjór hvarvetna. Heimamenn segja að um 75 prósent allra borða í helstu bjórhöllum séu frátekin löngu fyrir tímann. Sem þýðir að aðeins 25 prósent sæta eru eftir fyrir gesti og gangandi. Og þegar haft er í huga að síðustu árin hafa allt upp í sjö milljónir manna heimsótt Bæjaraland um þetta leyti er auðvelt að sjá að 25 prósent dugar skammt. Pantað er í bjórhöllunum sjálfum eða ef um virkilega stóran hóp að ræða er best að láta ferðaskrifstofuna sjá um þá bókun.
♥ Sé fólk það stálheppið að finna laust borð á hátíðarsvæðinu er ekki málið að setjast niður og kasta mæðinni. Óskrifuð regla í bænum er að setjist fólk niður í bjórtjaldi eða höll er það búið að skuldbinda sig til að kaupa bjór og mat og það vel af hvoru tveggja. Það gæti sloppið í minni bjórhöllunum þar sem ekki er þétt setið en alls ekki í þeim stóru. Ef í vafa er best að spyrja en nóg af af glöðu fólki alls staðar sem er sannarlega tilbúið að aðstoða alla gesti. Aldrei reyna að hamstra borð í bjórhöll ef svo má að orði komast. Það er argasti dónaskapur að setjast við autt borð og ætlast til að hafa það út af fyrir sig. Veitingamenn reka slíkt fólk gjarnan út sem ekki er reiðubúið að deila borði.
♥ Eins og gefur að skilja verða karlar kvensamir og konur karlsamar við þær kringumstæður sem ríkja á Októberfest. Og auðvitað hafa hinir reglugerðarelskandi Þjóðverjar fyrir löngu fundið þægilega lausn á óþægilegum vandamálum við þær aðstæður. Hægt er að sjá á mörgum konum í þar til gerðum klæðnaði hvort þær eru lausar og liðugar eða fráteknar. Það sést á hvoru megin þær hnýta hnút á svuntu sína. Sé hnúturinn hægra megin eru þær teknar en sé hnútur vinstra megin eru þær opnar fyrir vinsamlegu spjalli. Fararheill er ekki kunnugt um sams konar hnútareglu hjá karlmönnunum enda ekki með svuntur per se.
Margt annað er ágætt að hafa í huga fyrir Októberfest en það má heldur ekki fara á taugum yfir því öllu saman. Við látum því staðar numið að sinni.
Góða skemmtun.




