S umir flugfarþegar hafa af því reglulegar áhyggjur ef til þess kæmi að farþegi myndi tryllast og í bræði sinni reyna að opna hurð vélarinnar á flugi. Er hægt að opna hurðina með þeim hætti? Fýk ég út? Hvernig stoppa ég viðkomandi?

Ólíkt því sem margir halda er vonlaust að opna hurð á flugi.

Ólíkt því sem margir halda er vonlaust að opna hurð á flugi.

Það virðist vera sáraeinfalt að opna hurð á mörgum flugvélum. Það er jú yfirleitt aðeins ein einasta stöng sem flugþjónarnir snúa til að læsa hurðinni fyrir brottför.

En reyndin er sú að opna hurð í flugi er töluvert meira en að segja það og farþegi má pufast um alla eilífð án þess að bifa þeirri hurð á ferð. Meðan mögulegt er kannski að snúa umræddri stöng þá er það í raun ekki hún sem læsir hurðinni á flugi. Það gerir í raun loftþrýstingurinn inni í vélinni þegar flug er hafið.

Flestar hurðir á millilandaþotum opnast inn á við fyrst áður en hægt er að opna út. Þrýstingurinn inni í vélinni kemur í veg fyrir að þetta sé hægt því sá þrýstingur er mun hærri en fyrir utan vélina.

Hurðinni er sem sagt þrýst inn í flugvélarskrokkinn sjálfan innanfrá og hana opnar enginn nema að loftþrýstingur inni í vélinni falli undir það sem er utandyra. En þá er viðkomandi líklegast orðinn meðvitundarlaus vegna loftleysis þannig að það gengur heldur ekki upp.

Óhætt að láta þessar áhyggjur lönd og leið 🙂