G rikkland varð í dag þriðja landið í Evrópu til að galopna sig fyrir ferðafólki. Frá og með þessum degi þarf enginn á leið þangað að fara í sóttkví eða sýna fram á bólusetningu. Það nægir að sýna vottorð um hreinleika og sjúkdómsleysi.

Opið upp á ´gátt…

Sennilega slæm hugmynd hjá Grikkjunum því Kófið geysar víða enn en neyðin kennir nöktum Grikkjum að spinna og fátækt Grikkland er gríðarlega háð ferðafólki. Hingað inn komast því allir sem geta sýnt fram á að vera ekki veikir og skiptir engu hvort fólk hefur fengið bólusetningu eða hvaðan fólkið kemur.

Grikkirnir aðeins á eftir Möltu og Króatíu að opna svo upp á gátt fyrir erlendu ferðafólki hvaðan sem það kemur en Grikkland töluvert vinsælli áfangastaður en báðir þeir fyrrnefndu.

Miður fyrir Íslendinga eru ekki bein flug héðan til Grikklands en allt millilandastopp getur sett strik í reikning ef fólk á sér gríska drauma. Best að hinkra lengur. Ekki síst þar sem Grikkir hafa Kófið ekki undir stjórn fremur en aðrar þjóðir heims.