Skip to main content

S íðan hið hrapallega fall íslensku krónunnar átti sér stað hafa margir hverjir neyðst til að standast ýmsar þær freistingar sem áður þóttu næsta sjálfsagðar. Golfferðir er einn angi sem orðið hefur nokkuð úti enda kostar einn hringur á góðum völlum á Spáni eða í Portúgal vart undir 10 þúsund krónum og ýmsir betri vellir mun dýrari en það.

Marokkó hefur ekki sama úrval og nágrannalandið Spánn en það er næstum helmingi ódýrara að spila. Mynd Ataha

Marokkó hefur ekki sama úrval og nágrannalandið Spánn en það er næstum helmingi ódýrara að spila. Mynd Ataha

En það er ennþá ljós í myrkrinu fyrir þá sem vart lifa hamingjusamlega án nokkurra hringja þar sem regn og vindur koma ekkert við sögu.

Marokkó er einn staður sem enn er að skapa sér nafn sem golfáfangastaður en það sem gerir það land fýsilegt heimsóknar er hversu stutt það er frá Spáni eða Portúgal. Þar er hægt að komast í tiltölulega ódýrt golf nenni menn að hafa aðeins meira fyrir.

Flogið er til fjögurra borga landsins frá ýmsum stærri borgum Evrópu og velflest stóru lággjaldafélögin bjóða reglulega flug til Marokkó.

Þá er aðeins eftir að verða sér úti um hótel sem nóg er af í landinu og drífa sig á næsta golfvöll. Þeir eru reyndar ekki margir en flestir góðir og það sem mest er um vert er að meirihlutinn kostar kylfinginn kringum sex til átta þúsund krónur hver hringur. Vissulega ekki gefið en töluvert ódýrara en að spila örlítið norðar á Spáni eða í Portúgal. Þegar allt snýst um golfið og spila á fimm hringi eða fleiri í fríinu telur talsvert hvort hringurinn kostar fimm eða tólf þúsund. Í þokkabót er veðrið ekki síðra þó vissulega megi deila um hvort 35 til 40 stiga hiti sé gott eða slæmt.

Hér að neðan nokkrir bestu vellir landsins og verð á hring í janúar 2014. Fararheill getur af reynslu mælt með Palmeraie, Marrakech Royal Golf Club og The Royal Country Club. Ekki síðri en vellir hinu megin Gíbraltar sundsins og gisting hér almennt vel ódýrari líka.

Marrakesh

Palmeraie Golf Palace (8.600 krónur)

Amelkis Golf Club (6.900 krónur)

Marrakech Royal Golf Club (8.300 krónur)

El Jadida

El Jadida Royal Golf Course (6.900 krónur)

Rabat

Royal Dar-Es-Salam Golf Club (6.900 krónur)

Tangier

The Royal Country Club (5.500 krónur)