Tollverðir í Leifsstöð gera allan gjaldeyri umfram leyfileg mörk upptækan finnist það við öryggisleit. Er það gert að tilmælum Seðlabanka Íslands en hámark gjaldeyris sem fara með má úr landinu eru 350 þúsund krónur.
Liggur ekki alveg ljóst fyrir hvaða áhrif þetta hefur enda herma heimildir Fararheill að beiðnum til kreditkortafyrirtækjanna hér á landi um hækkun heimildar hafi fjölgað verulega strax á síðasta ári.
Sé mið tekið af því að margir eru með milli 500 og eina milljón króna heimild á kortum sínum er vandséð hvað slík harka í öryggishliðinu í Leifsstöð hefur að segja við að halda gjaldeyri innanlands.
Víkurfréttir greindu frá.






