Hún er athyglisverð auglýsing Cathay Pacific flugfélagsins sem sjá má hér að neðan en þar er gert stólpagrín að þeirri áráttu flugfélaga að troða alls kyns aukagjöldum á fargjöld sín. Sem því miður eykst sýknt og heilagt.

Engu slíku er fyrir að fara hjá mörgum flugfélögum í Asíu sem gefur þeim skotleyfi í bili en aukagjaldaáráttan er smám saman að ná til velflestra flugfélaga stórra sem smárra.

Sem dæmi um hversu aukagjöld ýmis konar geta hækkað fargjöld nægir að bóka flug hjá lágfargjaldaflugfélaginu Ryanair. Þar getur farið per se kostað tvö þúsund krónur en taki menn með tvær töskur og greiði með kreditkorti er kostnaðurinn um leið kominn í tíu þúsund.