Nútímafólk er orðið svo vant því að fá hluti upp í hendurnar tafarlaust að þeim fer mjög fækkandi sem kjósa að greiða fyrir eitthvað langt fram í tímann. Þannig má þó spara verulegar fjárhæðir.

Spara má hundruð þúsunda með því að bóka siglingar með löngum fyrirvara.
Gott dæmi um þetta má sjá á vef siglingafyrirtækisins Avalon. Þeir sérhæfa sig í fljótasiglingum um heim allan og þykja eitt af betri aðilum í þeim bransa en fljótasiglingar hafa notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár.
Avalon er að dæla út nokkrum tilboðum á ferðum nú í vor, sumar og haust og þar hægt að fá 10 til 20 prósent afslátt sem er ekkert til að kvarta yfir. En hafi fólk raunverulega þolinmæði og fyrirhyggja í fyrirrúmi er líka hægt að njóta 40 til 50 prósenta afsláttar á ferðum á næsta ári.
Það eru afsláttarkjör sem um munar fyrir alla og ekki síst þegar fljótasigling er nokkuð dýr ferðamáti. Sem dæmi um sparnaðinn má nefna að hjón eða par geta sparað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur á tólf til tuttugu daga löngum siglingum vor eða sumar 2016. Enn hærri sparnaður sé um lengri ferðir en það að ræða.
Það er fullorðins. Meira hér.







