Tíðindi

Funhiti í heita potti Iceland Express

  20/02/2012janúar 9th, 2015No Comments

Einhverra hluta vegna er nú hægt að gera ágæt kaup til og frá Kaupmannahöfn með Iceland Express en svokallaður Heiti pottur ferðasalans er nú troðinn og það af ferðum allt fram til september næstkomandi.

Vekur það athygli því venjan hefur verið að í umræddan pott fara einungis ferðir sem tiltölulega stutt er í og fylla þarf vélar en nú er hægt að bóka fjölda ferða í júní og ágúst auk annarra dagsetninga.

Öll verð í heita pottinum eru með öllum sköttum og gjöldum og miðað við að margar ferðanna í boði nú fást á 11.900 krónur er um fínan díl að ræða fyrir íslenska heimshornaflakkara.

Hafa skal þó hraðar hendur sem endranær og hafa skal í huga að ekki er gefið að fleiri en eitt sæti séu í boði á auglýstu tilboðsverði.

Heiti potturinn hér.