Aðeins tíu dagar síðan Viðskiptablaðið birti niðurstöður könnunar um ferðalög landans í skugga kórónafaraldursins. Þar kom í ljós að tæp 70% landsmanna ætla til útlanda á næstu sex mánuðum og sumir oftar en einu sinni . Síðan hefur mikið skólp runnið til sjávar.

Raðir í flug í Leifsstöð. Ólíkleg sviðsmynd næstu vikur og jafnvel mánuði. Mynd Brendon Goodmurphy

Könnun blaðsins góð og gild en tímasetningin afleit. Niðurstöðurnar birtar 12. mars en könnunin sjálf gerð 2.- 9. mars. Á þeim tíma voru „aðeins” 20 til 30 sýktir Íslendingar og slatti af landanum að dúlla sér á skíðum á Ítalíu. Nú eru staðfest smit á klakanum að nálgast sex hundruð talsins og þrettán þúsund látnir á heimsvísu.

Það því óhætt að slá föstu að ný könnun þessa efnis myndi sýna allt aðra niðurstöðu. Ekki eingöngu vegna þess að velflest lönd heims eru nú harðlokuð ferðafólki og gætu verið það um ókomna tíð heldur og vegna þess að hræðsla við þennan hættulega vírus hefur þúsundfaldast hið minnsta.

Flug og gisting á gjafverði?

Ritstjórn heyrt í allnokkrum einstaklingum síðustu dægrin sem hugsa sér gott til ferðaglóðar í sumar, haust og næsta vetur þegar vírusinn fer að láta undan síga. Það fólk sér fyrir sér að faraldurinn heyri sögunni að mestu leyti til eftir tvo til fjóra mánuði og þá sé nú aldeilis auðvelt að verða sér úti um flug eða gistingu á gjafverði. Það taki jú tíma að fá fólk til að ferðast á ný þegar mesta hættan verði liðin hjá og á þeim tíma verði flugferðir og hótelherbergi á kostakjörum enda verði hart leikinn ferðaiðnaðurinn að fá fólk til að ferðast hvað sem það kosti.

Næstu misseri

Er það rétt pæling? Já og nei er svarið við því. Það veltur á hversu lengi þjóðir heims eru að vinna bug á faraldrinum. Ljóst má vera að faraldurinn er rétt að fara á flug í Bandaríkjunum og mögulega í Mexíkó. Indland er aftast á meri hvað viðbrögð varðar og líklegra en ekki að þar blossi faraldurinn alvarlega upp á næstu sólarhringum. Öll Afríka, með tómar ríkishirslur og afar takmarkaða heilbrigðisþjónustu víðast hvar, er stórslys í uppsiglingu.

Hið vinsæla lággjaldaflugfélag Norwegian getur vel brotlent endanlega á næstu vikum þrátt fyrir inngrip norskra yfirvalda.

Nú liggur ekkert fyrir um hvort það tekst almennt að koma böndum á þennan illa vírus yfir höfuð en ef marka má Kína gæti verið hægt að takmarka útbreiðslu og sýkingar nægilega á tveimur til þremur mánuðum til að daglegt líf geti þrifist sæmilega að nýju. Vonandi að það sé rétt en þá skal líka hafa hugfast að engin þjóð hefur gripið til harðari aðgerða upphaflega en Kínverjar.

Rökrétt eða rökvilla?

En ef við gefum okkur að lífið sé komið í sæmilega eðlilegt horf í byrjun sumars eða um mitt sumar eða svo, er eitt sem margir ferðaþyrstir gleyma. Fram að þeim tíma munu mörg flugfélög fara yfir um og hellingur af gistihúsum og hótelum sömuleiðis fara yfir móðuna miklu. Enginn ríkissjóður neins staðar getur peppað upp alla ferðaþjónustu í öllum löndum í viðbót við allt annað mánuðum saman.

Það er því rökvilla falin í því að aldingarður lágra fargjalda og billegra lúxushótela rísi við sjóndeildarhringinn þegar allt kemur til alls. Það verða nefninlega færri en stærri flugfélög sem lifa þetta af og færri en stærri hótel og gististaðir. Tugþúsundir skuldsettra ferðaþjónustufyrirtækja munu ekki lifa fram á sumar og jafnvel þá mun taka tíma að koma boltanum af stað á nýjan leik. Margt fólk mun áfram verða hrætt við óþarfa ferðir langt fram á árið og ríki og bankar munu ekki vilja eða geta hjálpað fyrirtækjum sem eru á bjargarbrún.

Við gætum þannig fræðilega lent í tómri einokun í flugi eins og staðan var hér fyrir aldamót áður en lággjaldaflugfélög tóku til starfa. Það merkir hærri fargjöld en ekki lægri.

Vænlegast að hinkra með ferðaplönin í bili og sjá hverju fram vindur fram í maí eða svo áður en þið takið ákvörðun um flakk á erlendri grundu.