Flugfélagið Emirates var að smella út nýjum allsafaríkum tilboðum á flugi næstu misserin frá Bretlandi. Þar á meðal alla leið til Bangkok í Tælandi niður í rétt rúmar 80 þúsund krónur.

Emirates enn að skjóta út æði safaríkum tilboðum.
Það er með því allra lægsta sem finnst alla jafna með góðu flugfélagi alla þessa leið og ekki síst hjá Emirates sem efalítið er eitt af allra bestu flugfélögum heims. Algengt verð þessa leiðina hefur oftar verið kringum 100 þúsund krónur og þótt sæmilegt.
Fleiri staðir eru á tilboðslista Emirates þessa stundina frá London. Til dæmis Dúbai, Kúala Lúmpur og Perth í Ástralíu. Einhvern tímann hefði þótt saga til næsta að fljúga alla leið til Ástralíu og til baka fyrir rétt um 120 þúsund krónur eða svona á pari við það sem Icelandair krefur okkur um fyrir flug fram og aftur til Orlando.
Svo má finna fimm stjörnu toppgistingu í Bangkok niður í 3.500 krónur eða svo á bókunarvél Fararheill hér að neðan.







