Tíðindi

Fornt sæskrímsli í Alaska?

  23/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Skrímslaáhugafólk gæti gert verri hluti en panta sem fyrst flugmiða til Alaska í Bandaríkjunum. Þar hefur náðst á myndband örlítið brot af ókunnu dýri í sjónum við Bristol flóann.

Eru margir á því að heimurinn sé aðeins fátækari nú þegar skrímslasögur virðast heyra sögunni til og ekki hefur sést tangur né tetur á frægasta skrímsli seinni tíma í Loch Ness í Skotlandi.

En sjómaður einn frá Bristol í Alaska hefur náð myndum að því sem virðist furðu líkt sæslöngum þeim er margir telja sig hafa séð í Loch Ness vatni í Skotlandi og reyndar mun víðar í veröldinni öldum saman.

Hefur dýrið haus á stærð við hest, með langan háls og stór augu og það það sést meira að segja í kryppur á baki þess í þessu myndbandi sem náðst hefur.

Hefur enginn fengist til að fullyrða neitt um hvaða dýr þetta geti verið og sjómenn í Bristol í Alaska klóra sér bara í hausnum.