Tíðindi

Ekkert gefið upp hjá Iceland Express

  02/12/2010september 29th, 2014No Comments

Rúm vika er síðan Fararheill.is forvitnaðist um það hjá flugfélögunum íslensku, Iceland Express og Icelandair, hvort gert hefði verið upp að fullu við þá farþega þessara flugfélaga sem urðu fyrir töfum eða urðu strandaglópar um tíma vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli í vor.

Skemmst er frá að segja að engin svör hafa borist frá Iceland Express.

Fjöldi slíkra mála komu á borð beggja flugfélaga og voru skaðabótamál enn að berast flugfélögunum langt fram eftir sumri. Ein 50 flug féllu niður vegna gossins hjá Iceland Express og um 70 flug hjá Icelandair.

Erlendis hafa mörg flugfélög enn ekki gert upp sitt og hlotið bágt fyrir. Sérstaklega hefur lágfargjaldaflugfélagið Ryanair fengið á baukinn fyrir að hafna ýmsum kröfum og greiða út smánarlegar bætur.