Flugsamgöngur eru smátt og smátt að komast í samt lag á ný á Spáni eftir að þarlend stjórnvöld skipuðu flugumferðarstjórum aftur til vinnu sinnar. Höfðu þeir farið í skyndiverkfall snemma í morgun fyrirvaralaust og sköpuðu glundroða víða um Evrópu.
Gengu stjórnvöld hreint til verks og var flugumferðarstjórum vísað aftur til vinnu af vopnuðum lögreglumönnum og hermönnum en hundruð þúsunda ferðalanga urðu fyrir veseni vegna þessa og miklar tafir urðu á flugvöllum í Evrópu.






