Þó daglega og vel það berist slæmar fregnir af gjaldþrotum, uppboðum, skattahækkunum og ýmis konar álögum á þjóðina eru annaðhvort einhverjir með dýpri vasa en hinir eða fólk er orðið svo langþreytt að það tekur lán til að komast burt. Töluvert fleiri Íslendingar eru að ferðast nú en verið hefur síðustu tvö árin og fjölmargar ferðir ferðaskrifstofanna á næstunni eru uppseldar.
Þannig er orðið vel bókað eða fullbókað í fjölmargar ferðir yfir páskana hjá flestum ferðaskrifstofunum. Gildir einu hvort um er að ræða hefðbundna áfangastaði eins og Kanaríeyjar eða sérferðir á borð við siglingar eða gönguferðir. Þá er uppselt í fjölmargar golfferðir fram að sumri.
Fram kemur hjá greiningardeild Íslandsbanka að samkvæmt svokallaðri stórkaupavísitölu sem segja á til um kaupgleði fólks á dýrari hlutum fækkar þeim er spreða ætla seðlum í ferðalög á árinu. Ekkert bendir þó til þess fyrstu tvo mánuði ársins því 15 prósent fleiri Íslendingar fóru utan í janúar og febrúar en á sama tíma fyrir ári.






