Tíðindi

Fleiri og fleiri panta ferðir á netinu

  14/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Sífellt fleiri ferðamenn skipuleggja ferðir sínar sjálfir og nota til þess netið til að ná bestu kjörum og gera samanburð.

Þannig fær markaðsfyrirtækið eMarketer út að 114 milljónir áhugasamra bandarískra ferðalanga á þessu ári muni nota netið til að skoða og skipuleggja. Af þessum 114 milljónum segir eMarketer að 94 milljónir slái til og kaupi ferð á netinu.

Þá áætlar fyrirtækið að rúmlega 11 milljónir Bandaríkjamanna noti farsíma til að skoða og kaupa ferðir á netinu og er það ört vaxandi fjöldi enda tæknin til þess með góðu móti nýleg.