R itstjórn Fararheill er rammsek um að hvetja ævintýragjarna lesendur sína til að blæða í eins og eina ferð á hið víðfræga Októberfest í München í Þýskalandi enda stórmagnað fyrirbæri. En við höfum ekki mikið bent á gallana við heimsókn yfir þann tíma.

Það eru engin þjóðhátíðartjöld látin duga á Októberfest
Gallarnir eru mismargir og fara eftir því hversu siglt fólk er. Ævintýrafólk lendir reglulega í óvenjulegum og óvæntum uppákomum á ferðum sínum og er flestu vant en fólk sem hefur að mestu látið sólarstrendur á Spáni duga gæti orðið fyrir sjokki. Af eftirfarandi orsökum:
♥ Það þarf enga stærðfræðiheila til að vita að það er minnsta mál í heimi að stela veskjum, símum eða öðrum verðmætum í risastórum tjöldum þar sem blekfullt fólk dansar á borðum við dúndrandi músik. Þjófnaðir eru ekki undantekning hér heldur næstum regla. Lögreglan í borginni er löngu hætt að taka niður væl yfir smotteríi enda of fáliðuð til en 2015 voru skráð 1290 tilfelli „alvarlegri þjófnaða“ eins og það heitir. Nálega 800 manns voru handteknir sama ár.
♥ Oft vill kastast í kekki milli fólks þegar drukkið er stíft heilu og hálfu sólarhringana. Vandamálið hér það að eitt besta vopnið ef hiti færist í mannskap eru eins lítra bjórkönnurnar sem allir fá sem hér panta drykki. Þær eru níðþungar og auðvelt að brjóta mann á bak aftur sé einni slíkri þrykkt í höfuð. Rauði krossinn, sem sér um neyðarhjálp á svæðinu, tók móti 7.900 manns árið 2015 sem voru sárir eða þjáðir. Þar af þó aðeins 600 sem drukkið höfðu yfir sig.
♥ Engum á að koma á óvart að verðlag víða í borginni hækkar töluvert yfir hátíðarhöldin. Dæmi eru um hótel sem hækka herbergisverð hjá sér fimmfalt þann tíma og þann leik leika flestir minni kaupmenn sem reka verslanir nálægt hátíðarsvæðinu. Jafnvel inni á því svæði getur kostnaður margfaldast á skömmum tíma. Í stærri tjöldum er ekki hægt að fara út nema borga inn aftur jafnvel þó greitt hafi verið áður. Fimm evrur hér og fimm evrur þar telur fljótt hjá flestum.
♥ Það þekkja flestir sem sótt hafa góða útihátíð á Íslandi eða annars staðar að káf og kynlíf er partur af prógrammet. Októberfest ekki nokkur undantekning á því. Þó gæsla sé öflug og lögregla spígspori um reglulega er næstum bókað að rekast á fólk í innilegum stellingum eftir að myrkur leggst yfir hátíðarsvæðið. Stundum líka stíga á fólk sem ekki hefur þolinmæði til að bíða með að njóta hvors annars lengra en fimm metra frá næsta hátíðartjaldi.




