Tíðindi

Fjórar borgir á tilboði hjá Icelandair

  14/08/2012No Comments

Markaðsdeild Icelandair er vöknuð til lífsins eftir sumarfrí og býðst nú flug til fjögurra borga flugfélagsins á tilboðsverði til hádegis á morgun miðvikudag.

Stökkvi fólk á hraðtilboð Icelandair er hægt að skíða og dúlla sér í brekkum Klettafjalla langt fram í desember.

Í boði að þessu sinni eru Billund í Danmörku og Bergen í Noregi og er þangað komist aðra leið fyrir 14.900 krónur. Til Frankfurt í Þýskalandi fæst flugið aðra leiðina á 16.900 og síðast en ekki síst er verðlækkun á flugi til Denver í Bandaríkjunum en önnur leiðin þangað kostar 27.900 krónur.

Sem fyrr eru tilboðin aðeins í boði á ákveðnum tímum. Fljúga verður til Billund milli 6. september og 22. október, Bergen er í boði frá 18. september til 13. desember meðan Frankfurt býðst frá 15. október til 14. desember.

Athygli vekur að tilboðið til Denver, nýjasta áfangastaðar Icelandair, nær frá 7. október til 17. desember. Ekki aðeins gefst þar færi á að versla duglega fyrir jólin heldur er ekki verra að á þeim tíma eru velflest vinsælli og stærri skíðasvæði í Klettafjöllunum opin fyrir bissness.

Heimasíða Icelandair hér.