Samkvæmt talningu ritstjórnar Fararheill.is hafa þegar þetta er skrifað einir sjö íslenskir fjölmiðlar séð ástæðu til að birta af því fréttir að Icelandair hafi framlengt flugtímabil sitt til Washington í Bandaríkjunum um einn mánuð.
Á sama tíma er Bylgjan með beina útsendingu frá Hamborg, í boði Icelandair, og útvarpsstöðin ennfremur nýbúin að vera með vel auglýstan leik í gangi í samstarfi við Icelandair þar sem verðlaunin voru ferð með Icelandair.
Verður að telja það orka afar tvímælis að birta sem raunverulegar fréttir að flugfélag ætli að fljúga aðeins lengur til borgar í Bandaríkjunum. Er það meira í ætt við ókeypis auglýsingu en frétt.






