Tíðindi

Fjölda ferðamanna fastir vegna flóða

  31/03/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Að minnsta kosti tuttugu manns eru látnir eftir töluverð flóð á suðurströndum Tælands síðustu dagana sem ennfremur hefur gert þúsundir ferðamanna að strandarglópum á eyjum landsins. Harðast úti urðu ferðamenn á eyjunni Koh Samui en björgunaraðgerðir hafa gengið seint og illa.

Er einnig fjölda fólks leitað en ekki er ljóst hvort einhverjir ferðamenn eru þar á meðal. Eru vegir víða í sundur og rafmagn og hreint vatn af skornum skammti í nokkrum þorpum við strandlengjuna.

Um er að ræða héruðin Krabi, Nakhon Sri Thammarat, Surat Thani, Phattalung, Chumphon, Trang og Satun sem verst hafa orðið fyrir flóðunum og eru ferðamenn varaðir við ferðalögum á þessar slóðir. Skal hafa samband við ferðaskrifstofur ef vafi leikur á einhverju.

Undarlegast af öllu þykir að mars og apríl eru jafnan ekki mjög blautir mánuðir í Tælandi og er því mikil úrkoma síðustu daga afar óvenjulegt fyrirbrigði.