Engum sem fylgst hefur með fréttum er ókunnugt um þau miklu og mannskæðu átök sem eiga sér stað í höfuðborg Tælands þessi dægrin. Er hollt og gott að sleppa Tælandsferðum með öllu um stundarsakir meðan úr málinu greiðist jafnvel þó áfangastaðurinn sé allt annar en Bangkok.
Það helgast af því að hvarvetna í landinu eru íbúar ósáttir við stjórnvöld sem hrifsuðu til sín völd af réttkjörnum forseta. Ríkir mikil reiði víða og skiptir engu við hvern er talað eða hvar að alls staðar eru heimamenn reiðubúnir í átök til að vinna lýðræðið til baka.
Hafa bandarísk yfirvöld varað sína þegna við þvælingi í Bangkok enda lífi útlendinga ekki þyrmt ef viðkomandi er á röngum stað á röngum tíma.






