Tíðindi

Fernt sem fer fyrir brjóst ferðalanga

  14/11/2010júlí 4th, 2014No Comments

Fjórir hlutir sérstaklega fara fyrir brjóstið á ferðalöngum í erlendum löndum samkvæmt viðamikilli könnun Transperfect sem er leiðandi aðili í tungumálakennslu í heiminum.

Eiga niðurstöðurnar varla að koma á óvart enda velflest okkar sem ferðumst lent í þessum fjórum aðstæðum einu sinni eða oftar.

Kvartanirnar fjórar snérust um:

  1. Almenningssamgöngur erfiðar – Mörgum þykir erfitt að skilja og átta sig á samgöngumöguleikum í erlendum borgum. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú þegar ferðalög almennt eru að verða dýrari og fleiri vilja ferðast fyrir minni upphæðir en áður.
  2. Vandræði á veitingastöðum – Tungumálaörðugleikar eru sérstaklega erfiðir á veitingastöðum þar sem þjónar tala ekki staf í erlendum tungum né eru matseðlar á fleiri tungumálum.
  3. Merkingar óskiljanlegar – Víða eru skilti og merkingar óskiljanlegar fyrir erlenda ferðamenn. Það á jafnvel við á stórum og vinsælum ferðamannastöðum.
  4. Hótelbókanir á netinu – Enn eiga margir í erfiðleikum með hótelbókanir á netinu. Á það sérstaklega við bókanir á smærri hótelum og gistihúsum sem bjóða takmarkaðar eða engar upplýsingar gegnum netið.

Niðurstöður Transperfect hér.