Ein er sú ferðaskrifstofa sem kannski lítið fer fyrir en gengur vel og úrval ferða í boði fjölbreytt og gott. Er þar um að ræða ferðaskrifstofuna Trans Atlantic á Akureyri sem líkast til er ein af þeim stærstu utan höfuðborgarsvæðisins. Sem er frábært mál nema ferðaskrifstofan brýtur lög.
Á vef Trans Atlantic má finna margar fróðlegar ferðir og reyndar mun meiri fjölbreytileika en í boði er hjá nokkrum mun stærri ferðaskrifstofum landsins.
En engar finnast verðupplýsingar um flestar þær ferðir sem í boði eru. Það er skýrt brot á lögum enda er óheimilt með öllu af hálfu lögaðila að auglýsa og selja vöru eða þjónustu án þess að geta verðs og þá með öllum sköttum og gjöldum.
Þó eflaust megi finna á þessu skýringar sem efalítið má rekja til flöktandi íslenskrar krónu og gengis hennar gagnvart erlendum gjaldmiðlum er þetta algjörlega óboðlegt gagnvart neytendum að mati ritstjórnar Fararheill. Þá hlýtur þetta ennfremur að kosta starfsmenn Trans Atlantic aukið vesen að svara fyrirspurnum símleiðis eða í pósti.
UPPFÆRSLA
Egill Örn Arnarson hjá Trans Atlantic hefur svarað gagnrýni ritstjórnar Fararheill.
Ferðaskrifstofan hefur í mörgum þeirra ferða sem kynntar eru á okkar heimasíðu ekki tilgreint neinar dagsetningar þar sem umræddar ferðir hafa ekki fengið fasta dagsetningu og eru því ekki í boði á næstunni. Upplýsingar um áfangastaði, hótel og annað sem verður þó í boði þegar slík ferð er dagsett er þó að finna á okkar vefsíðu enda þá slík ferð áður verið farin og lýsingunni ætlað að segja frá því sem vænta megi. Er vefnotendum og væntanlegum viðskiptavinum okkar gefin kostur á því að bóka sig á póstlista til að fá fréttir þegar dagsetning liggur fyrir. Má í þessu líta svo á að ferðaskrifstofan leitist við að gefa sem skýrasta mynd af því úrvali áfangastaða sem hún er að bjóða og mun bjóða til sinna viðskiptavina.
Í þeim ferðum þar sem fyrir liggur dagsetning birtum við ævinlega verð jafnóðum og hægt er, sérstaklega þegar um leiguflug er að ræða líkt og gert er fyrir 3 borga sýn í Austurríki í lok Apríl nk.
Í flestum þeirra fjölbreyttu sérferða sem við bjóðum er um að ræða hópferðir með takmörkuðum fjölda til að tryggja góða þjónustu á meðan ferðinni stendur. Þá eru verðin birt þegar erlendir birgjar og þjónustuaðilar hafa fastsett sín verð til okkar og auðvitað kappkostum við að koma slíkum upplýsingum ævinlega á framfæri eins fljótt og auðið er enda slíkt til þess fallið að flýta kynningu og sölu ferðanna. Í þessu sambandi má benda á ferð til Mexíkó og Guatemala í nóvember, Indland í lok mars, Albanía í október og Sri Lanka í október.
Ristjórn Fararheilla bendir einnig réttilega á í sinni umfjöllun að óstöðugleiki hins íslenska gjaldmiðils er til staðar og gerir m.a það að verkum að íslenskar ferðaskrifstofur treysta sér ekki til þess að gefa erlendum viðskiptavinum upp verð í innlendri mynt. Ef ekki þyrfti að horfa til gengisskráningar væri án efa bæði einfaldara og fljótlegra að fastsetja öll verð erlendis sem hafa áhrif á verðlagningu ferða til íslenskra viðskiptavina sem hyggja á ferðir erlendis.






