Þeir eru ekkert mikið að grínast í Feneyjum. Borgaryfirvöld hafa gripið til ýmissa aðgerða til að fækka þeim mikla fjölda ferðamanna sem borgina sækja. En það er algjör nýjung að senda lögregluna til að vísa þúsundum frá viðburðum í borginni.

Viðburðir í Feneyjum. Ekki vera viss um að sjá nokkurn skapaðan hlut.

Hið fræga og vinsæla Feneyjarkarnival er í fullum gangi þessi dægrin en karnivalið hefur löngum dregið fólk sérstaklega til borgarinnar í ofanálag við þann ægilega fjölda ferðafólks sem hér eyðir tíma þess utan.

Karnivalið fer auðvitað fram í miðborginni eins og gengur og samkvæmt erlendum miðlum meinuðu lögregluþjónar allt að 20 þúsund ferðamönnum að komast inn í miðborgarkjarnann til að fylgjast með herlegheitunum.

Það er gallsúr aðferð að okkar mati. Fólk búið að eyða háum fjárhæðum til að vitna einhvern skemmtilegasta viðburðinn í borginni en þá stendur löggan í vegi fyrir að þú komist á svæðið!!!

Hvar endar þetta rugl?