Flugferð fyrir einn til Evrópu og máltíð á Tapas barnum og eða 66.500 krónur. Það var tilboð forsvarsmanna Iceland Express til þeirra farþega sinna sem voru strandaglópar í París um helgina eftir að ein véla flugfélagsins var kyrrsett af hálfu eftirlitsmanna á De Gaulle flugvelli.
Sem kunnugt er orðið urðu farþegarnir að dúsa klukkustundum saman á flugvellinum áður en þeim var boðið á hótel þar sem ókunnugum var gert að gista í einu og sama herberginu.
Bað Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, farþegana afsökunar á langri bið sem stóð í sólarhring áður en þreyttir ferðalangar komust loks á áfangastað. Sagðist hann ennfremur ætla að ræða við ferðalanga og bjóða þeim bætur fyrir vandræðin.
Hefur farþegum nú borist skeyti þar sem þeim er boðið flug fram og til baka til Evrópu auk kvöldverðar á Tapas barnum í Reykjavík og einhverjum farþegum boðnar 66.500 krónur í peningabætur að auki. Hafa þó ekki allir farþegar fengið boð um peningabætur samkvæmt upplýsingum Fararheill en skýringin gæti verið að ekki hafi náðst í alla ennþá.
Þær peningabætur, 400 evrur, eru hefðbundnar skaðabætur þegar flug raskast óeðlilega mikið samkvæmt reglum Evrópusambandsins sem í gildi eru hérlendis. Flugferðin og maturinn eru þannig rúsínan í pylsuendanum fyrir þá farþega sem í töfinni lentu.
Vekur þetta þó spurningar um alla hina sem einnig hafa í fortíðinni orðið fyrir svipuðum atvikum og fengu lítið fyrir sinn snúð. Ekki síður verður forvitnilegt að vita hvort næsti hópur sem í slíku lendir fær sams konar boð.