Það þykja yfirleitt tíðindi þegar hinir og þessir staðirnir komast á eftirsótta heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Eðlilega enda fara þangað aðeins merkilegustu staðir jarðar og ferðamönnum fjölgar jafnan ört á þeim stöðum umfram aðra. En afar lítið fer fyrir fréttum af stöðum sem missa þennan stimpil.

Afar fátt ljúft og notalegt við slíka mannþröng. Þetta er samt raunin í velflestum götum Feneyja að sumarlagi.
Staðreyndin er að það er ekkert gefið að komast á heimsminjaskrá. Slík skráning hefur í för með sér töluverðar álögur því heimsminjaskrá er ekki í þeim bransa að fjölga ferðamönnum til og frá heldur fyrst og fremst að vernda þá staði jarðar, náttúrlega eða manngerða, sem af bera. Það kostar skildinginn fyrir þá sem stimpilinn fá. Ekkert ókeypis við að viðhalda náttúruperlu eða stórkostlegu mannvirki fyrir hinum ýmsu gestum og vágestum.
Þess vegna vita fáir af því að í vetur sem leið fengu borgaryfirvöld í Feneyjum, hvers miðborg er eins og hún leggur sig á heimsminjaskránni, sinn annan mínuspunkt í heimsminjabókina. Reglan er að eftir þrjár aðvaranir eða mínusa, missir staður titilinn því þá þykir einsýnt að menn eru ekki á tánum að vernda umrædda perlu.

Graffíti í götu í Feneyjum segir allt sem segja þarf. Þar stendur: Út með ferðamenn, flóttamenn velkomnir.
Ekki þarf að segja neinum frá vandamálum Feneyja sem þangað hefur komið undanfarin ár. Borgin svo gegnsósa af fjöldatúrisma að íbúum hefur fækkað um 40 prósent á skömmum tíma vegna ágangs og dýrtíðar sem fylgir auðvitað slíkum túrisma. Það líka hefur í för með sér stóraukna mengun sem líka kemur verst niður á þeim íbúum sem enn láta sig hafa það að lifa hér.
Borgaryfirvöld voru lengi vel svo ánægð með túrismann að það þurfti stjórnvöld í Róm til að koma skikki á græðgi borgarinnar, sem auðvitað græðir heil ósköp á tugþúsundum erlendra ferðamanna sem hingað koma daglega. Það voru stjórnvöld í Róm sem höfðu frumkvæði að því að takmarka ferðir skemmtiferðaskipa inn í borgina og jafnframt setja takmörk á hversu mörg skemmtiferðaskip geta nú heimsótt Feneyjar.

Róleg stund á Markúsartorginu? Gleymdu þeirri hugmynd.
Halda mætti að sú aðgerð hefði í beinu framhaldi af fyrstu viðvörun heimsminjanefndar en aðalástæðan þó sú að skrúfur risaskipanna valda svo miklum usla í Feneyjarflóa að undirstöður margra elstu bygginga borgarinnar voru farnar að gefa sig. Það er enginn túristi að gera sér ferð til Feneyja ef önnur hver bygging þar eru rústir einar.
Takmörkun skemmtiferðaskipanna var þó aðeins plástur á hjartasár. Það fór ekkert fram hjá heimsminjanefnd að skyndibitastöðum í borginni fjölgaði um 400 prósent á tæpum átta árum og þeir margir, ef ekki allir, bjóða upp á að taka mat með út eða takeaway. Og þar sem sólin skín velflesta daga og margt ber fyrir augu eru auðvitað tugþúsundir sem vilja grípa KFC með sér út á Rialto brú eða aðra fallega staði og gúmsa í sig þar. Sem eðli máls samkvæmt þýðir stóraukið rusl og mikið af því endar í skurðum borgarinnar eða lóninu útifyrir.
Nú greinir ítalska dagblaðið Corriere della Sera frá því að borgaryfirvöld í Feneyjum hafi ákveðið að banna alfarið takeaway á veitingastöðum. Héðan í frá verður fólk að setjast niður og njóta matar síns á þeim stöðum sem maturinn er keyptur ella punga út fyrir feitri sekt ef til þess næst að narta í gúmmelaðið utandyra.
Frábær hugmynd í alla staði. Ef fólk hefur ekki vit á að ganga vel um á umsvifalaust að sekta það duglega og jafnvel gera það brottrækt úr landinu.
Á meðan er allt í góðu að annar hver ferðamaður á helsta heimsminjastað Íslands, Þingvöllum, geri þarfir sínar úti í næsta runna. En heimsminjanefnd veit af því líka því við létum vita 🙂







