
Feneyjar einhvern tíma heillað? Kannski er næsta vor málið.
Það, gott fólk, er fimm stjörnu verð til þiggja stjörnu áfangastaðar. Ekki svo að skilja að Feneyjar séu ekki meira en þriggja stjörnu. Það er borgin sannarlega. En yfirgengilegur fjöldatúrismi er álíka heillandi og að hinn gerspillti Kristján Þór Júlíusson verði næsti forsætisráðherra og yfirgengilegur túrismi er normið í ítölsku borginni.
Ergo: Feneyjar detta úr fimm stjörnum í þrjár. Því þó margt sé skoðunar virði í þessari vatnsósa borg þá er stór mínus hvað allt kostar hér stjarnfræðilegar upphæðir og raðir af fólki í allt sem spennandi þykir. Eðlilegt þegar eftirspurn er langt umfram framboð og frjáls markaður ræður ríkjum. Hér þarf meira að segja í langar hálfrússneskar raðir langi fólk í ferskt brauð að morgni til.
Þessi leiðindi breyta því ekki að fimmtán þúsund krónur er súperverð á staðinn í beinu flugi og nett úttekt okkar leiðir í ljós að heim er komist aftur fyrir rúmar 20 þúsund eða samt40 þúsund krónur alls fram og aftur en það reyndar án nokkurs nema handfarangurs meðferðis.
Það alveg príma samt að okkar viti…
Wizz Air hér og svo er ekkert galið að tryggja sér gistingu á hóteli, gistihúsi eða í íbúð á svæðinu hjá níföldum heimsmeistara samkvæmt World Travel Awards hér að neðan 😉







