Nýtt ár, ný tilboð. Lággjaldaflugfélagið easyJet er að dúndra út flugferðum til valinna áfangastaða allt niður í sex þúsund krónur og hjá ferðamiðlinum Flight Centre í Bretlandi er útsala á völdum lengri flugferðum.

Dolce Vita og það á afsláttarverði kæri fólk sig um.
Það eru góðar fréttir fyrir alla nema kannski þá sem sitja uppi með jólagjafabréf Wow Air eða Icelandair. Þau nýtast eðlilega ekki neitt í flug á erlendri grundu ólíkt til dæmis beinhörðum peningum.
EasyJet flýgur héðan til allnokkurra áfangastaða og með þeim hægt að komast á tilteknum tímum út fyrir tólf þúsund krónur á hjón eða par. Þaðan svo hægt að halda för áfram fyrir sama prís ef vilji er fyrir hendi. Um 150 þúsund sæti eru í boði á þessu verði og þau fara fljótt.
Flight Centre auglýsir allt að 35 prósenta afslátt af lengri ferðum og þar til dæmis í boði að fljúga frá Gatwick til Dubai og aftur niður fyrir 50 þúsund krónur. Til Bangkok er komist frá London og aftur til baka niður í rúmar 90 þúsund og munar um minna.
Endilega kíkja á easyJet og Flight Centre.







