Tíðindi

Fátækt heillar ferðalanga

  19/04/2012mars 23rd, 2021No Comments

Margir kannast við umdeildar en vinsælar ferðir í fátækrahverfi Ríó de Janeiro og Sao Paulo í Brasilíu þar sem ferðafólk gefst kostur að heimsækja Favelas hverfin illræmdu. Sitt sýnist hverjum um slíkt en vinsældirnar eru miklar og nú hafa ferðafrömuðir í Jakarta í Indónesíu gripið til sama ráðs.

Geta nú allir sem það vilja fengið leiðsögn um fátækustu hverfi þeirrar borgar en 65 prósent íbúa lifa undir fátæktarmörkum og þar er fleira í boði fyrir ferðalanganna en í Brasilíu. Er í boði að skoða heimili, verksmiðjur og jafnvel koma við þar sem börnum er þrælað áfram harðri hendi við fatasaum eða þaðan af verra.

Sé áhugi fyrir hendi er hægt að forvitnast meira hér.


View Larger Map