Tíðindi

Farsímainnritun hægt en örugglega af stað

  21/04/2012No Comments

Enn sem komið er nýta tiltölulega fáir sér þá nýjung hjá Icelandair að innrita sig í utanlandsflug með farsímanum. Slíkt er í boði á átján áfangastöðum flugfélagsins og getur sparað töluverðan tíma og leiðindi.

Nú innritar fólk sig beint í flug með farsímann einan að vopni og sparar sér tíma og vesen

Þessa þjónustu hefur verið hægt að fá um rúmlega eins mánaðar skeið en gildir aðeins um flug Icelandair enn sem komið er þó líklegt verði að telja að þetta verði ennfremur í boði hjá Wow Air og Iceland Express áður en langt um líður.

Þetta þýðir til að mynda að sé fólk ekki að ferðast með farangur þarf ekki að stoppa eitt augnablik í flugstöðinni fyrr en komið er í öryggishlið enda fær fólk flugmiðann sinn sendan í farsímann sem svo er lesið af með skanna. Aldrei þörf á pappírsmiða.

Fyrir lungann af ferðafólki skipta kannski einhverjar mínútur til eða frá á flugvelli ekki meginmáli þó leiðinlegir séu en fyrir fólk sem ferðast oft og mikið er þetta himnasending. Engin biðröð við innritunarborð, engin biðröð við töskuafhendingu eða farmiðaútprentun heldur haldið rakleiðis í öryggishlið með símann.

Til að nýta sér farsímainnritun þarf að heimsækja slóðina m.icelandair.is í farsímanum. Þar valin innritun og sett inn eftirnafn farþega og bókunarnúmer. Að lokinni bókun fæst rafrænt brottfararspjald sent beint sem smáskilaboð í símann eða sent á netfang sem kemur sem pdf skjal í símanum.