Margt mannanna meinið og þar ekki síst græðgi og vibbi. Nú er hafin formleg rannsókn í Flórída á skipafélaginu Norwegian Cruise Lines, NCL, fyrir að gera lítið sem ekkert úr kórónafaraldrinum við hugsanlega viðskiptavini.

Norwegan þykir einna fremst í skemmtisiglingabransanum. En svo bregðast krosstré sem önnur. Mynd NCL
Engum heilvita manni dylst að einn allra versti staður til að vera á þegar faraldur gengur yfir er á skemmtiferðaskipi á ballarhafi. Það er jú ekki eins og þú getir flúið nokkurn skapaðan hlut nema auðvitað með því að læsa þig inni í káetunni hele vejen. En slíkt á lítt skylt við skemmtilega siglingu.
Söluaðilar NCL virðast hafa, langt fram á þennan mánuð, gert lítið sem ekkert úr hættunni af Covid-faraldrinum sem dregið hefur átján þúsund til dauða þegar þetta er skrifað. Það þrátt fyrir ráðleggingar stofnanna á borð við WHO og CDC sem hafa varað við skemmtisiglingum frá mánaðarbyrjun.
„Faraldur, Haraldur. Hafðu frekar áhyggjur af því að bera nóga sólarolíu á kroppinn.”
„Þú verður að hafa hraðar hendur að bóka. Allt fólkið sem hefur afbókað ferðir um Asíu er breyta bókunum sínum í aðrar siglingar.”
„Kórónavírusinn er ekkert vandamál í hitanum á karabíska enda drepst veiran í miklum hita segja vísindamenn.”
Allt ofangreint línur frá sölufólki NCL síðustu tvær vikurnar þar sem gert er lítið sem ekkert úr einhverjum alvarlegasta faraldri sem geysað hefur í áratugi.
Ágætt að hafa þetta bak eyra þegar sigling er næst á döfinni. Bóka frekar hjá aðilum sem bera snefil af virðingu fyrir lífinu umfram hagnað. Ekki hvað síst með það í huga að NCL er skráð á Bermúda þar sem skattar eru eitthvað ofan á brauð í besta falli.







