Úpps! Nýr dagur, meira fall hjá Icelandair. Bréf í flugfélaginu féllu um rúm fimm prósent þennan daginn eins og í gær. Einn hlutur kostar nú eina krónu og fimmtíu og átta aura.

Forsvarsmenn hafa þegar sagt upp lunga starfsfólks en hafa látið nægja að lækka sín eigin laun um smotterí í kórónakrísunni. Það þrátt fyrir að það sé forsvarsmönnum og stjórn um að kenna að flugfélagið er farið að skrimta fimm mínútum eftir alvarlega krísu.

Hlutafjárútboð sagt framundan til að bjarga því sem bjargað verður en hætt við að fyrirtækið verði nú orðið gjaldþrota vel fyrir þann tíma.

Ef ríkið ætlar að eyða peningum almennings til bjargar á annað borð þarf slík aðstoð að koma á allra næstu dögum. Ella heyrir Icelandair sögunni til.