Svo undarlegt sem það er komast flugfélögin íslensku upp með það ár eftir ár að stórhækka fargjöld sín þegar eftirspurnin er hvað allra mest.
Sérstaklega virðist það virka yfir jól og áramót þegar Íslendinga erlendis langar heim og Íslendingar hér heima vilja heimsækja fjölskyldur sínar og vini ytra.
Þarf ekki að glugga í margar kennslubækur um viðskipti til að komast að því að slíkt fyrirbæri á aðeins við þar sem fákeppni ríkir. Er enda vandfundnar aðrar þjónustugreinar sem hækka verð sín um allt að helming þegar vitað er að að ferðalangar eiga ekkert eða lítið val.
Fararheill.is tók nokkrar stikkprufur hjá bæði Iceland Express og Icelandair um jólin. Útkomuna má sjá hér fyrir neðan.
Iceland Express:
London – Keflavík aðra leiðina fyrir einn einstakling. Algengt meðalverð 19.805 með sköttum.
- Verð þann 30.desember 55.367 með sköttum. Mismunur: 35.562 krónur
Kaupmannahöfn – Keflavík aðra leiðina. Algengt meðalverð 24.750 með sköttum.
- Verð þann 23.desember 48.953 með sköttum. Mismunur 24.203 krónur.
Icelandair:
Kaupmannahöfn – Keflavík. Tveggja vikna ferð 25. nóvember til 9. desember. Verð 40.006 með sköttum.
Kaupmannahöfn – Keflavík. Tveggja vikna ferð 22. desember til 4. janúar. Verð 76.296 með sköttum.
- Verðmunur 36.290 krónur
London – Keflavík. Tveggja vikna ferð 25. nóvember til 9. desember. Verð 48.522 með sköttum
London – Keflavík. Tveggja vikna ferð 20. desember til 3. janúar. Verð 82.622 með sköttum
- Verðmunur 34.100 krónur






