Guð og vættir hjálpi okkur öllum. Evrópusambandið samþykkti í dag nýjar reglur sem næstum því gera okkur öllum ókleift með öllu að taka myndir neins staðar á ferðalögum okkar í álfunni.

Frá og með deginum í dag geta arkitektar að öllum byggingum sem sjást á þessari mynd lögsótt okkur hér og heimtað feita seðla.
Við hér á ritstjórn öll þokkalega líberal eins og það heitir á máli fagmanna. Við elskum samkeppni og að ríkið sé ekki of mikið að skaufast í málefnum einstaklinga og fyrirtækja. Og við hingað til verið svona meira á bandi Evrópusambandsins en ekki.
Það breyttist í dag.
Hvað gerðist?
Jú, í atkvæðagreiðslu samþykkti þetta ríkjasamband alvarlegar hömlur á frelsi einstaklinga með samþykktum sínum á nýjum reglum vegna höfundarréttar.
Gætum röflað lengi um málið en látum nægja að segja að í framtíðinni gæti orðið vægast sagt vandræðalegt að taka myndir í erlendum borgum eða á erlendum stöðum og birta þær á samfélagsmiðlum. Vandræðalegt kannski ekki orðið því eftirleiðis gætir þú þurft að greiða hundruð þúsund króna fyrir að birta skitna mynd af þér í Rynek Glówny í Kraká í Póllandi. Eða mynd af þér í rauða hverfinu í Amsterdam eða mynd af þér í Agios Georgios á Kýpur.
Ók, smá útskýring nauðsynleg.
Evrópusambandið lagði í dag blessun yfir ný höfundarréttarlög. Sem ætti að vera gott og blessað enda á fólk að fá greitt fyrir sitt hvernig sem það er tilkomið.
En lögin ganga allt of langt. Þau segja til dæmis að ef þú tekur myndir af götulífinu í einhverri evrópskri götu og birtir á samfélagsmiðlum getur vel verið að þú fái feitan reikning eða reikninga í pósti skömmu síðar.
Lögin kveða nefninlega á um að ef þú birtir á samfélagsmiðlum mynd af því sem á einhvern hátt er varið höfundarrétti gæti þér verið gert að greiða fúlgur fyrir.
Dæmi:
Þú tekur mynd af borgarlífinu fyrir utan KaDeWe í Berlín. Fjöldi fólks á ferli, birtan góð og þú vilt láta vini vita af því að þú sért á leiðinni á fimmtu hæð samnefndrar verslunarmiðstöðvar sem er heimsþekkt fyrir heimsklassa úrval af mismunandi réttum.
Allt eðlilegt hingað til. Þú á framandi og þekktum stað og vilt láta vita af því.
En þá koma til ný lög ESB. Ef á myndum þínum má sjá auglýsingu á strætó, hönnun á bol eða sérstakan arkitektúr tiltekins mannvirkis og þú birtir myndina opinberlega getur fjöldi fólks nú farið fram á sérstaka greiðslu. Auglýsingastofan sem hannaði auglýsinguna á strætó, hönnuðurinn sem hannaði merkið á bolnum sem sést á myndinni og meira að segja arkitektinn sem hannaði bygginguna sem þú myndaðir geta gert kröfu um peninga ef myndin er á samfélagsmiðlum.
Ekki heldur gleyma kokkunum á fimmtu hæðinni. Þú myndar kannski þá ljúffengu rétti sem þú ætlar að fá og lætur samfélagsmiðla vita. Úpps, kokkurinn í KaDeWe á allt í einu kröfu á þig.
Allt ofur-eðlilegt við slíkt (ekki.)







