Yfirborðsmennskan ríður ekki við einteyming á litla Íslandi. Fyrirbærið Festa, sem segist standa fyrir ábyrga ferðaþjónustu og hefur fengið forseta Íslands til að vernda allt klabbið, hefur Icelandair sem sérstakan bakhjarl!!!

Icelandair styrkir fyrirtæki sem vill að fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð… Það er brandari.
Og við sem héldum að forsetinn stæði nú fyrir eitthvað ólíkt tækifærissinnanum sem sat á stóli áður.
Fólkið bak Festu ætti kannski, áður en það fær Icelandair til að sponsa, að kíkja á þessa síðu hér hjá Samgöngustofu. Lesa svo gegnum öll málin gegn flugfélaginu til að komast að því að Icelandair brýtur 100 prósent á reglum um að veita beri farþegum upplýsingar um rétt sinn þegar eitthvað á bjátar. Svakaleg samfélagsábyrgð þar.
En Festa lætur ekki nægja að hleypa Icelandair inn. Þar er líka Eimskip sem bakhjarl. Fyrirtæki sem hefur oft og ítrekað komist í kast við samkeppnislög samkvæmt Samkeppniseftirlitinu eins og lesa má um hér. Eðalfín samfélagsábyrgð þar.
Ættum við að minnast á Borgun? Borgun er félagi í Festu og á þar með að sýna samfélagslega ábyrgð með vottun og stimpli og whatnot. Hvernig væri á að byrja á að endurgreiða Landsbankanum þá milljarða sem Borgun hafði af bankanum fyrir fávitahátt Landsbankamanna? Milljarða sem fólkið í landinu á og getur mætavel notað. Nei, það þarf ekkert svoleis rugl til að sýna samfélagslega ábyrgð.
Rio Tinto Alcan er líka meðal samfélagstoppa Festu. Sama fyrirtæki og neitaði að greiða starfsfólki lágmarkslaun og er með starfsemi á þeim stað á Íslandi þar sem hvað mest mengun hefur mælst í landinu. Jebb, þetta er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki samkvæmt Festu.
Allt saman eðlilegt …







