Evrópusambandið samþykkti árið 2010 reglur sem bæta til muna rétt ferðalanga sem ferðast um í skipum og bátum en reglurnar taka mið af svipuðum reglum er gilda fyrir flugfarþega.
Þær reglur eru æði harðar og neytendavænar og ætti fólk umsvifalaust að láta á þær reyna ef eitthvað fer miður um borð þegar siglt er á fljótum eða höfum við Evrópu.
Meðal þess helsta sem breyttist til batnaðar frá fyrri reglum þetta varðandi er:
♥ Full endurgreiðsla verði tafir meiri en 90 mínútur eða siglingu frestað.
♥ Full aðstoð við farþega verði tafir við brottför meiri en 90 mínútur eða verði ferð felld niður. Það á við um mat, drykki og þar sem það á við gistingu allt að þremur nóttum.
♥ Fjárhagsbætur, 25% til 50%, ef verulegar tafir verða á komutíma eða ferðir falla niður.
♥ Öll aðstoð við fatlaða einstaklinga skal vera ókeypis og ávallt til staðar af hálfu skipafélagsins.
♥ Lágmarksreglur settar varðandi upplýsingaskyldu bæði fyrir og á meðan ferðalagi stendur.
♥ Skýrt sé með hvaða hætti eigi að koma kvörtunum á framfæri.
♥ Hvert land í Evrópusambandinu komi upp skrifstofu eða stofnun sem sjái um að reglunum sé framfylgt og bætur fáist greiddar út.





