Þvert á móti er það eitthvað það leiðinlegasta sem hægt er að gera að þurfa að sitja hálfan sólarhring eða lengur um borð í farþegaþotu. Þá er verið að tala um ódýrara farrými enda töluverður munur að geta bókstaflega breytt sætum í rúm eins og raunin er á betri ferðaklassa margra flugfélaga í dag. Það er þó vart í boði fyrir krónueigendur flesta hverja.
En það eru ákveðnir hlutir sem við getum gert sem þurfum að fara langt til þess bæði að gera flugið eins gott og framast er unnt en ekki síður gera okkur kleift að mæta á áfangastað í þokkalegu standi og reiðubúin í ævintýri.
A) Í handfarangur setjið allt sem þið megið ekki vera án. Vegabréf, fjármuni, kort, síma, myndavél, nærur, tannbursta og annað slíkt sem sár missir yrði að ef taska týnist eða seinkar. Þangað setjiði líka augnmaskara, eyrnapúða, svitalyktareyði, þrýstisokka, handáburð, öll meðul og lyf sem þörf er á og ekki sakar að eiga nokkrar hausverkjatöflur. Með þetta allt í næsta nágrenni er minna mál að annaðhvort standa upp annars lagið og laga sig til og líta bara vel út þegar loks er stigið frá borði.
B) Auðvitað er hlægilegt þegar þybbna manneskjan í sæti 14C rífur sig úr sætinu reglulega og fer að fetta sig, bretta og teygja í allar áttir í stundarkorn. En sú manneskja hlær kannski best og síðast því langflug eykur mjög hættuna á að fá blóðtappa. Kyrrseta í margar klukkustundir er fín ávísun á slíkt. Blóðtappi getur verið óþægilegur í besta falli en hann getur líka leitt til dauðsfalls. Sem auðvitað hefur töluverð áhrif á fríið. Hreyfið ykkur og látið einu gilda hvort einhver bendir eða hlær. Þetta er þitt líf. Öll hreyfing hjálpar og vart þarf að minna á að vera í eins víðum fötum og hægt er. Níðþröngar tískugallabuxurnar verða hræðilega óþægilegar eftir fjögurra til fimm stunda flug.
C) Þó það skipti okkur Íslendinga yfirleitt engu höfuðmáli nákvæmlega í hvaða sæti við sitjum í frá Keflavík sökum þess hve stutt flug eru flest héðan þá skiptir það töluverðu máli í lengra flugi. Sem betur fer eru ekki mörg flugfélög sem langar leiðir fljúga sem ekki bjóða rúmt sætisbil en það getur komið fyrir. Greiðið endilega aðeins meira ef hægt er fyrir aðeins betra sæti sé þess kostur áður en lagt er í langflug.
D) Við fullvissum fólk um að Þórarinn Tyrfingsson hafði engin afskipti af þessari ráðgjöf sem einhverjir gætu túlkað á þann máta þegar við brýnum fyrir fólki að sleppa öllu áfengi fyrir langflug. Það er eitthvað það allra versta sem hægt er að gera því vökvatap fólks í flugi allsgáð er mikið og drykkja fyrir flug eða á meðan eykur það til muna. Það útskýrir óvenju stóra svitablettina eftir skemmri flug og margfaldaðu það með þeim tíma sem langflugið tekur. Nei, súpið kannski aðeins á glasi af víni þegar skammt er eftir en ekki fyrr.
E) Það hjálpar sumum, en ekki öllum, að skipuleggja fyrirfram tímann í fluginu. Ákveða áður en lagt er í hann hversu mikill tími á að fara í svefn, lestur eða tölvugláp ef því er til að skipta. Mörgum hryllir við tilhugsunina um fimmtán klukkustundir við hliðina á ókunnu fólki og mikla flugið fyrir sér löngu áður en sest er um borð. Það hjálpar engum. Með fyrirfram mótaða áætlun í fluginu skiptir engu máli hver situr við hlið þér því þú ert búin að ákveða hvernig þú ætlar að eyða tímanum og lenda á áfangastað tiltölulega hress og til í allt.





