Sannleikanum verður hver sárreiðastur. Sem er líklega ástæða þess að Isavia sér enga ástæðu til að svara Fararheill vegna gagnrýni okkar á stjórnendur fyrirtækisins. En við tökum eftir að svör birtast hjá Davíð Oddsyni og félögum.

Áríðandi tilkynning sem verið hefur á vef Keflavíkurflugvallar undanfarnar vikur. Skjáskot
Það kemur ekki á óvart. Mogginn ekki beint þekktur fyrir hárfína gagnrýni eða að sparka í pung stórra auglýsenda.
En Fararheill elskar debatt og því tökum við upp hjá sjálfum okkur að svara ekki-svörum Isavia. Fréttin er svona:
Í yfirlýsingunni segir að ISAVIA fylgist með biðröðum og leitast á öllum tímum við að minnka biðtíma farþega þar sem því verður við komið.
Þegar ástandið var verst í byrjun júlí voru samtals biðraðir í innritun og öryggisleit 90 mínútur, samkvæmt mælingum ISAVIA að því er fram kemur í yfirlýsingunni. Þar segir að á þeim dögum hafi staðið yfir uppsetning á öryggisleitarlínum sem hafa tafist vegna vandamála hjá framleiðanda.
„Eftir þessa tvo-þrjá daga í júlí þar sem biðraðir voru lengstar hefur heildarbiðtími langflestra farþega verið undir 60 mínútum og raunar yfirleitt undir 30 mínútum samtals í innritun og öryggisleit. Til samanburðar má nefna að biðtími í röð á Kaupmannahafnarflugvelli er oft á annan klukkutíma á mestu álagstímum nú í sumar.“
Við höfum aðeins eina spurningu. Ef biðtími er aðeins orðinn hálftími samtals í innritun og öryggisleit hvers vegna er þá Leifsstöð að hvetja ferðafólk á vef sínum að koma með minnst 2,5 – 3 tíma fyrirvara á völlinn? Og nota bene, orðalag tilkynningarinnar hefur breyst. Það voru þrír tímar hið minnsta fyrr í vikunni.
Ef ferðamaður er kominn inn í Leifsstöð á álagstímum á hálfri klukkustund af hverju þá að fá fólk til að hanga í Leifsstöð í margar klukkustundir? Er hugmyndin kannski að fá fólk snemma inn til að það eyði tíma sínum í verslunum? Finnst ykkur gaman að eyða tíma viðskiptavina í hangs?
Óskum svars.
PS: væri ekki kjörið að í stað þess að setja mannskap í að fylgjast með biðröðum að setja mannskap að stytta biðraðir?







