Fréttablað milljarðamæringsins Helga Magnússonar hefur verið duglegt að flytja fregnir af kínverskum flugfélögum sem ætla að fljúga hingað til lands á næstunni. Eitt flugfélag staðfest hið minnsta en hvergi finnast slíkar ferðir á vef þess flugfélags.

Kínverska flugfélagið Juneayo hið fyrsta þaðan sem býður flug til Íslands og héðan til Kína en þó með stoppi í Finnlandi.
„Kínverska flug félagið Juneyao Air mun í lok mars hefja flug milli Keflavíkur og Sjanghæ, með viðkomu í Helsinki. Þetta staðfestir Xu Xiang, forstöðumaður félagsins á Norðurlöndum. Flogið verður tvisvar í viku allt árið en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að um 20 þúsund farþegar verði fluttir til landsins á næsta ári.”
Svo hljóðar inngangur fréttar Fréttablaðsins fyrir rúmri viku síðan. Flug til Sjanghæ frá Íslandi niðurnjörvað frá marsmánuði á komandi ári.

Skjáskot af vef Juneayo. Ekkert að frétta af flugferðum til og frá Íslandi.
Einhver gæti haldið að talsmaður stórs kínversks flugfélags léti ekki slík ummæli frá sér fara án þess að allt væri geirneglt. Það svona svipað faglegt og hjá forsvarsmönnum Play sem héldu geðveikt partí þó ekki væri gengið með nema 100 þúsund króna yfirdrátt í bankanum.
Í ljós kemur að Kínverjarnir eru ekkert mikið meira prófessjonal. Feit og löng leit Fararheill bæði á vef Juneyao og á þekktum flugleitarmiðlum leiðir í ljós að ekki einn túr til Íslands eða frá er enn í boði. Ekki í mars, ekki í apríl, ekki í maí, ekki í júní og ekki svo langt sem elstu menn muna.
Ekki þar með sagt að Kínverjarnir séu ekki heilir heilsu og heils hugar með flugferðir sínar. Öllu heldur að það er fyrir neðan hellur BM Vallá að tilkynna glænýja áfangastaði og auglýsa bæði dagsetningar og verð í fjölmiðlum og vera svo með bremsufar í brók þegar fólk fer að leita viku síðar.
Bremsufar ætti reyndar ekki að koma á óvart miðað við umsagnir um Juneayo á netinu. Flugfélagið er með fimm stjörnur af tíu mögulegum samkvæmt viðskiptavinum á vef Skytrax. Það er á pari við Icelandair sem hefur aldrei talist til merkilegra flugfélaga.
Í öllu falli er ekki um flug til Kína að ræða eins og Fréttablaðsfólk vill vera láta. Þetta er flug til Finnlands og þaðan áfram til Kína og væs versa.







