Vegir Guðs sagðir órannsakanlegir og sannarlega má yfirfæra hið sama yfir á verðlagningu Wow Air. Á 20 mínútna kafla breyttist verð hjá þeim á sama flugi til London um tugi þúsunda.

Skuggalegur verðmunur á sama flugi á nokkrum mínútum hjá Wow Air.
Það er skrambi góð ástæða fyrir að verðlagning flugfélaga almennt er eins ógegnsæ og hugsast getur. Aðeins þannig geta slík fyrirtæki leikið sér með netmiðla eftir hentugleika. Hækkað verð eftir hentugleika og svo er alkunna að svokallaðar kökur, cookies, eru notaðar í þeim tilgangi að hækka verð sérstaklega þegar oft er leitað.
Með öðrum orðum; ef þú leitar oftar en einu sinni að flugi á sama stað til dæmis á meðan þú ert að gera upp hug þinn í einhverja daga þá geturðu fengið enn dýrara fargjald upp því oftar sem þú leitar. Ástæðan er cookies en þær láta flugfélagið vita að þú langar svo mikið í flug á ákveðnum tímum að þú leitar oftar en einu sinni og kannski mun oftar. Þá er sniðugt að hækka verð.
Það er hins vegar stórundarlegt mál að verð lækki sísona og það um jafnvel tugi þúsunda króna á nokkurra mínútna kafla eins og Fararheill varð vitni að. Hér að neðan má sjá verðtöflu Wow Air aðra leiðina til London sem fékkst eftir leit á vef þeirra laust eftir klukkan fjögur. Takið sérstaklega eftir 30.mars og 2. og 3. apríl.
Berið það saman við töflu tvö sem er einnig flug aðra leiðina til London en 20 mínútum yngri. Nú finnast skyndilega ferðir á miklu lægra verði en upp var gefið 20 mínútum fyrr. Munurinn stórkostlegur eins og 30. mars þegar rúmlega átján þúsund króna verðmismunur er á nákvæmlega sama flugi. Það er tæplega 90% verðmunur á sömu vöru.
Nú þýðir ekkert fyrir Fararheill að kanna ástæður þessa ótrúlega munar því við erum í straffi hjá Wow Air. En þetta er alvarlega skringilegur munur. Væri kannski óskandi að eins og ein Neytendastofa færi ofan í kjölinn á slíkum viðskiptaháttum og það sem fyrst.
Skjámynd tekin klukkan 16:08 mánudaginn sextánda febrúar 2015.

Skjámynd tekin klukkan 16:34 mánudaginn sextánda febrúar 2015:








