„Mér finnst ekkert að þessu. Ég er bara að koma í veg fyrir að þeir sem leigja hjá mér séu ekki að stela, ganga illa um eða eitthvað þaðan af verra. Og ef eitthvað gerist er ég með sönnun fyrir öllu saman og fæ það bætt vandræðalaust.”

Faldar myndavélar finnast um allt og ekki hvað síst hjá ýmsum leigusölum Airbnb og öðrum svipuðum aðilum.
Snorri (ekki hans rétta nafn) hefur um tveggja ára skeið rúmlega leigt úr þrjár mismunandi íbúðir á íbúðavef Airbnb. Hann stærir sig af því að taka upp nánast allt sem fram fer í þeim íbúðunum með vefmyndavélum og hann geymir allt efnið þangað til hver gestur tékkar út.
Snorri er einn af þeim snarfjölgandi eigandum leiguíbúða sem fylgjast með öllu sem gestir taka sér fyrir hendur meðan á skammtímaleigu stendur og verja þá aðgerð með því að þeir séu bara að fylgjast með að vel sé gengið um.
Út af fyrir sig ekki óeðlilegt að leigusalar vilji upptökutæki í þeim íbúðum eða húsum sem þeir leigja út. Það er jú ekki óþekkt að leigjendur, til skamms eða langs tíma, gangi um leiguíbúðir eins og almenningsklósett á Litla-Hrauni eða jafnvel verr en það.
Gallinn hins vegar sá að leigusalar láta ekki gesti sína vita að verið sé að fylgjast með þeim og þaðan af síður að í stöku tilfellum er efnið beinlínis selt út í heim. Þar sérstaklega efni sem er af kynferðislegum toga en til eru miðlar sem sérstaklega gera út á að kaupa slíkt efni.
Snorri vinur okkar vill ekki viðurkenna að mynda neitt í svefnherbergjum eða á salernum enda bryti drjúgt í bága við persónuverndarlög og líklega önnur lög líka. Hann viðurkennir þó að ýmsar forvitnilegar senur hafi borið fyrir augu úr stofu og eldhúsi þegar að var gáð. Hann segir þó af og frá að hann hafi selt slíkt efni.

Raunveruleg eftirlitsmynd af hjónarúmi í íbúð. Stuttu seinna komu gestir inn og nutu ásta í beinni.
Myndavélar um allt hús
Financial Times fjallaði um sama efni fyrir ekki svo löngu síðan. Með síaukinni tækni eru eftirlitsmyndavélar orðnar svo smáar, fullkomnar og hræódýrar að þær er hægt að fela í nánast öllu. Innstungum, rúmgöflum, pennum og jafnvel í sturtuhengjum án þess að nokkur verði var sem ekki er beinlínis að leita.
Stutt leit á Alibaba eða Amazon leiðir í ljós að kaupa má hreint ágætar eftirlitsmyndavélar allt niður í tvö þúsund krónur eða svo sem geta tekið upp heilu vikurnar af efni og sent beint í tölvu eða síma. Það þarf ennfremur ekki langa leit á þessum sömu stöðum til að finna tæki sem leita uppi og finna faldar myndavélar eða eftirlitsbúnað. Fyrirtæki sem framleiða slíkt væru ekki langlíf ef ekki væri ótti um slíkt fyrir hendi hjá mörgum.
Kynlífið á netið
Burtséð frá öllum persónulegum upplýsingum sem hægt er að fá með eftirliti 24/7 þá er líka hægt að mynda kynlífsathafnir gesta ef svo ber undir og jafnvel bara sturtu- eða baðsenur. Slíkt efni getur bæði verið notað til að kúga meira fé út úr viðkomandi en ekki síður beinlínis selja slíkt ef myndgæði eru góð. Og hver er ekki að njóta kynlífs á ferðalögum sem mest þeir geta?
Ekki þarf einu sinni að selja efnið heldur aðeins hóta að efnið leki á netið ef húseigandinn fær ekki fimm stjörnur að dvöl lokinni. Ýmsar leiðir færir í þeim efnum og fáir vilja nektarmyndir af sér á næstu klámsíðu. Það gæti útskýrt hve stór fjöldi eigna á Airbnb eru með toppeinkunn.
Hótelin ekkert endilega betri
Ekki halda að dvöl á fínu hóteli sé einhver trygging fyrir nógu næði og einrúmi til að spássera um á fæðingarklæðunum vandræðalaust eða njóta ásta eins og á morgun sé dómsdagur. Mýmörg dæmi eru um fúla og lágt launaða hótelstarfsmenn sem koma fyrir eftirlitsmyndavélum í herbergjum gesta. Því dýrari herbergi því betra auðvitað. Þannig nást mögulega myndir af þekktu ríku fólki sem hægt er að kúga meira en þorra almennings.
Auðvitað bæði kjánalegt og fráleitt að kaupa og hafa með sér tæki sem nemur allar myndavélar hvar sem fólk stígur niður fæti. En miðað við að Jón og Gunna leigusalar, eins og Snorri, telja sjálfsagt og eðlilegt að mynda gesti sína við öll tækifæri er kannski þjóðráð að fara jafn varlega í leiguíbúð og værir þú á klósettinu á Ölstofunni. Hver veit hver er að fylgjast gaumgæfilega með öllu saman…







