Enginn hér aðdáandi sitjandi forseta Bandaríkjanna enda gáfnafar þess einstaklings á pari við sex vatta ljósaperu. En eitt hefur sá skíthaus gert rétt. Takmarkað á ný ferðir til Kúbu.

Fólkið yndislegt og náttúrufegurð er mikil víða um eynna.
Barack Obama létti ýmsum takmörkunum á ferðalögum til þessarar himnesku karabísku eyju á sínum tíma og umsvifalaust fjölgaði bandarískum túristum á Kúbu um mörg hundruð prósent.
Allir vita að Kaninn, almennt, er ömurlegur túristi. Blaðrandi út í eitt um ekki neitt, alltaf hávær eins og páfugl á fengitíma og er farinn að kvarta á samfélagsmiðlum þegar þjónusta er ekki eitt hundrað prósent á fjórum mínútum sléttum.
Stjórn Trump hefur á ný takmarkað svo ferðir Bandaríkjamanna til Kúbu að hrein unun er að. Neikvætt vissulega fyrir hin ýmsu ferðaþjónustufyrirtæki á eynni en súperjákvætt fyrir þau okkar sem elska Kúbu einmitt vegna þess að þar eru ekki milljónir bandarískra túrista að eyðileggja allt og allt. Sjá Cancún í Mexíkó til samanburðar.
Óvíst er hvort fávitinn Trump verður forseti Bandaríkjanna næstu fimm árin í viðbót en ef ske kynni að svo færi ekki er ráð að heimsækja Kúbu núna eða næstu mánuðina. Verðlag er lægra en það hefur verið um tveggja ára skeið, veðrið príma eins og alltaf og þú laus við háværa, leiðinlega plebba frá Bandaríkjunum á strandbarnum.
Við borgum alveg extra fyrir það 🙂







