Ók, þið kannski búin að negla bílaleigubíl og niðurnjörva Evróputúrinn frá A til Ö áður en lagt er í hann. Þið hin sem ekki eruð svo fyrirhyggjusöm en elskið flakk um Evrópu getið brosað aðeins breiðar.

Tilboð á tilboð ofan hjá mörgum stærstu lestarfyrirtækjum Evrópu í boði. Skjáskot
Tökum dæmi: hraðlest París til Brussel eða sama leið til baka. Kostnaður per haus niður í 2.600 krónur. Miði frá París til Girona á Spáni eða sömu leið til baka alls 6.800 krónur. Nú eða HELMINGS AFSLÁTTUR á öllum ferðum innan Ítalíu með TrenItalia.
Þrjú dæmi um verðlag með topplestum Evrópu á sumarútsölum sem velflest lestarfyrirtæki álfunnar eru að bjóða þessa dagana. Ef einhverjum kann að virðast dýrt að borga 2.600 krónur milli Parísar og Brussel með hátæknilegri hraðlest ætti sá hinn sami að skoða hvað hefðbundið verð er á þeirri leið.
Um að gera að nýta sér góð afsláttarkjör lestarfyrirtækjanna ef þvælingur um Evrópu er á dagskránni. Hægt er að gera kostakaup alveg fram til 31. júlí og ferðatíminn nær langt fram á haustið.
Þá er líka ráð, til að stytta leiðina, að kíkja á RailEurope því sá vefur heldur þokkalega vel utan um tilboð allra helstu lestarfyrirtækjanna. Svo bara bóka og voilà!