T ími til kominn að krónuræfillinn okkar sýndi eitthvað lífsmark. Eftir alvarlegan niðurgang og legusár í rúmt ár er krónan örlítið farin að sýna lit. Til að mynda hefur bandarískur dollari ekki verið jafn ódýr síðan í desember 2019.

Loksins, loksins vaknar krónan aðeins til lífs.
Eitt stykki dollari kostar nú rétt rúma 121 krónu (miðgengi) þegar þetta er skrifað og þarf að leita aftur til 30. desember 2019 til að finna þann gjaldmiðil á lægra verði. Sami dollari hoppaði í 148 krónur hér fyrir liðlegu ári síðan og sá því lækkað um rétt rúm 18 prósent á einu ári.
Ekki svo að skilja að það séu kjarakaup. Sami dollarinn fékkst á 98 krónur um mitt ár 2018 og tæpar 50 krónur ef við förum aftur um heil fimmtán ár.
Engu að síður skárrenekkert og munar aldeilis um fyrir ferðalanga vestur um haf að fá allt nú á tæplega 20% afslætti miðað við sama mánuð í fyrra.







