Walt Disney snýr sér svo oft við í gröfinni að kirkjugarðsstarfsmenn þar sem kauði liggur hafa farið fram á feita launahækkun vegna eilífrar yfirvinnu.

Disney samsteypan séð að sér í miðjum faraldri en þó aðeins að hluta. Mynd RobertCiavarro

Að gamni slepptu, og það er sjaldan fönn að sleppa gamni, er sitthvað athugavert við þá sem reka Disney samsteypuna vestanhafs. Þeir hafa nú lokað öllum skemmtigörðum sínum í Bandaríkjunum NEMA þessum í Orlandó í Flórída.

Skemmtigarðar Disney í Hong Kong, Shanghæ og Kaliforníu eru nú lokaðir sökum kórónafaraldsins en fyrirtækið heldur garði sínum í Orlandó í Flórída opnum enn sem komið er.

Það undarleg ráðstöfun svo ekki sé fastar að orði kveðið. Allnokkur tilfelli kórónaveirunnar fundist í Flórídafylki þegar þetta er skrifað og Flórída er jú það fylki Bandaríkjanna þar sem meðalaldur er hvað hæstur. Það einmitt gamla fólkið sem er í mestri hættu hvað viðkemur covid-19 og því kannski eðlilegt að loka þar fyrst.

En forráðamenn Disney vita sínu viti enda með milljarða króna í árslaun. Þrátt fyrir súperkunnáttu þeirra er samt gáfulegt að vera ekkert að þvælast mikið í Disneyworld Flórída þó þar sé opið.