Þá er hin árlega Daytona Bikeweek hafin enn eitt árið en umrædd mótorhjólahátíð er sú stærsta í víðri veröld. Þangað koma hálf milljón gesta hvert ár og meira og minna allir á mótorfákum af ýmsum tegundum. Virðist sem hækkandi eldsneytisverð virðist ekkert breyta áhuganum.
Ekki þarf að kynna Bikeweek fyrir áhugamönnum um mótorhjól en fyrir hina óinnlimuðu snýst hátíðin um að leiða saman alla þá sem áhuga hafa á kraftmiklum hjólum. Eru reyndar mótorfákar af Harley gerð allra vinsælastu hjólin á svæðinu og skreytt eftir behag hvers og eins.
Logar öll borgin af stemmningu kringum hátíðina og hundruðir mismunandi atburða og uppákoma í gangi þá rúma vika sem hátíðin stendur. Allir mótorhjólaframleiðendur heims eru hér með stóra bása og fjölda hjóla sinna til sýnis og sölu. Daglega fara allir sem áhuga hafa á „rúntinn“ sem kallaður er Loop og er samkeyrsla stóran hring. Er það tilþrifamikil sjón sökum fjölda mótorhjóla.
Ekki síst þá hefst hér keppnistímabilið á Daytona kappakstursbrautinni sem eðlilega hefst á mótorhjólakeppni. Þá er fjöldinn allur af sýningaratriðum víðs vegar um borgina þar sem glæfraatriði á mótorhjólum eru aðdráttaraflið.
Sjá heimasíðu Bikeweek hér.






