Einn úr ritstjórn á leið til Osló í byrjun næsta mánaðar. Lægsta fargjald þá leiðina kostaði heilar tíu þúsund krónur og var slegið fyrir þremur vikum síðan. Og nú fáum við póst daglega frá Norwegian þar sem okkur er boðið að gera tilboð í BETRI SÆTI um borð. Er það þess virði?

Flugfarþegar þekkja þetta núorðið. Velflest flugfélög heims bjóða þér að greiða tiltekið aukalega til að komast leiðina á fyrsta farrými eða lúxusfarrými gegn því að þú gerir tilboð í þau sætin.

Nú er leiðin til Osló í Noregi tiltölulega einföld og fljótleg og jafnvel þó sætin séu þröng og hallist ekkert aftur breytir það afar litlu fyrir fólk í góðu líkamlegu ásigkomulagi. Betri sæti á stuttri flugleið skipta sem sagt litlu eða engu máli fyrir þorra fólks.

Það hefur ekki komið í veg fyrir tólf skeyti frá Norwegian þar sem farþega á allra ódýrasta farrými er boðið gull og grænar bólur gegn því að gera tilboð í betri sæti þá leiðina. Betri sæti, aukin þjónusta og jafnvel forgangur við innritun.

Tilboðið er kjánalegt sökum þess að innritun í Leifsstöð tekur sjaldan lengur en tíu mínútur. Kjánalegt sökum þess að flugtími til Osló er þetta tveir og hálfur tími. Og sérstaklega kjánalegt vegna þess að lægsta mögulega boð í betri sæti aðra leiðina til Osló kostar 22 þúsund krónur aukalega. Fargjaldið til Osló kostar manninn því 33 þúsund krónur í betra sæti að lágmarki.

Er það góður prís til Osló? Ekki þegar haft er í huga að umræddur aðili gat strax við upphafsbókun geirneglt betra sæti á betra farrými fyrir 38 þúsund krónur. Það er því fimm þúsund króna munur á „lágmarkstilboði” Norwegian eftirá og eðlilegu verði á betra farrými til Osló.

Góður díll?

Neibbs! Ekki í nokkru tilliti.