Eftir nánast óstöðvandi niðurgang frá febrúar síðastliðnum hafa bréf í Icelandair loks tekið lítils háttar kipp upp á við og allir þeir sem keyptu bréf á eina krónu í frægu útboði í september hafa nú grætt 26 aura á hverju og einu bréfi.

Bóluefni til bjargar? Margir virðast halda það en við efins…

Það var tími til kominn á einhverjar jákvæðar fréttir af hugsanlegu bóluefni gegn Kófinu og það var raunin fyrr í vikunni þegar lyfjarisinn Pfizer sagði frá afar velheppnuðum tilraunum með nýtt lyf. Lyf sem bælir niður eða drepur kóróna-veiruna í 90% þeirra sem þátt tóku í viðamikilli rannsókn.

Ekki fyrr var fréttatilkynningunni sleppt en bréf í velflestum ferðaþjónustufyrirtækjum heims hækkuðu enda sú grein orðið einna verst úti í faraldrinum. Hugmyndin auðvitað að með bóluefni geti ferðalög og annað eðlilegt líf hafist að nýju með tilheyrandi plúsum fyrir flugfélög og ferðaþjónustuaðila.

Todo bien í alla staði. Kófið hefur sett allt skemmtilegt á frost lungann úr árinu og því fyrr sem úr bætist því betra fyrir allt og alla.

Þetta fornkveðna með ausuna og kálið…

Lyf Pfizer, þó lofi góðu, hefur alls ekki fengið neinn grænan stimpil eða heimild til sölu á almennum markaði. Við höfum bara orð forsvarsmanna Pfizer að virkni nýja lyfsins sé 90%. Lyfið, að því gefnu að virknin sé svo góð, þarf að fara í úttekt hjá heilbrigðis- og lyfjanefndum víðs vegar um heiminn. Því ef eitthvað þá hefur Evrópa lært að taka ekkert mark á yfirlýsingarglöðum Bandaríkjamönnum. Eða hvernig fór aftur með Boeing-Max vottun Bandaríkjamanna?

Þess utan kemur hvergi neitt fram í tilkynningum Pfizer hvort þeir sem fái lyfið geti smitast að nýju eða hvort þeir læknast að eilífu.

Jafnvel þó allt sé með felldu…

Gefum okkur augnablik að lyfjarisinn sé ekki að ýkja tölfræðina úr rannsóknum sínum til að koma skriði á hlutabréf í fyrirtækinu því annað eins hefur nú gerst. Þá eru samt ljón á veginum áður en Jón og Gulla geta heimsótt tengdó á sjúkraheimilið, haldið grillveislu í hjólhýsinu á Laugarvatni eða flogið áhyggjulaust til Tene um jólin 2021. Ljónin eru þessi:

A) Pfizer getur aðeins framleitt tiltekið magn lyfsins. Fyrirtækið segist geta framleitt 50 milljónir skammta fyrir árslok (25 milljónir skammta per mánuð.) Jarðarbúar eru 7,5 milljarðar alls. Það tekur Pfizer áratugi að framleiða nóg bóluefni fyrir mannkynið allt.

B) Ekki nóg með að skammtarnir séu af skornum skammti heldur þarf hver og einn einstaklingur að fá lyfið tvívegis og það innan 30 daga tímabils til að það virki sem skyldi. Ergo; 25 milljónir skammta per mánuð duga því fyrir 12,5 milljón manns þegar upp er staðið.

C) Lyfið þarf að flytja og geyma í 70 – 80 gráðu frosti! Hvaða geymslustaður á Íslandi getur geymt fleiri tonn af lyfjum við 80 mínusgráður í fleiri vikur eða mánuði? Svarið við því einfalt: enginn.

D) Verður lyfið frítt? Stór spurning því þó öllum langi í „eðlilegt” líf að nýju þá eru barasta ekki allir með fúlgur milli handa. Löngum verið fjöldi fólks hérlendis sem hefur ekki efni á að leysa út hefðbundin lyf. Ef lyf Pfizer verður ekki aldeilis frítt er lítið unnið.

E) Verður skylt að taka lyfið? Miðað við mikilvægið og almannahagsmuni er ekki fráleitt að ætla að stjórnvöld geri þá kröfu að notkun lyfsins verði skylda fyrir alla landsmenn. Gangi þeim vel með það. Bara þúsundir þarna úti sem vantreysta stjórnvöldum og dytti ekki til hugar að taka ríkislyf þótt lífið lægi við. Sem það gerir reyndar fyrir marga.

Niðurstaðan er:

Með hliðsjón af ofangreindu, og er þá fátt eitt nefnt sem getur hamlað því að Kófið verði landlægt hér og annars staðar, er megaofurbjartsýni að halda að flug- og ferðaþjónusta geti verið að rokka á nýjan leik fljótlega á næsta ári. Ekki fráleitt að ætla að lyf sem virkar stuðli að auknum ferðalögum frá því sem nú er en í besta mögulega falli fer ekkert að detta í gott horf fyrr en síðla árs 2021 í allra fyrsta lagi. Kannski ekki fyrr en 2024 eins og forstjórar KLM, Lufthansa og Delta telja líklegt.

Það er því pínulítið kjánalegt að sjá vitgranna fjárfesta kaupa bréf í flugfélögum um leið og fyrstu fréttir berast. Því ef mark væri tekið á fyrstu fréttum væri Donald Trump áfram forseti Bandaríkjanna en ekki Joe Biden 😉